rokk og popp, tónlist
Skálmöld - Allt
Verð
6.990 - 15.990 kr
Tímabil
1. nóvember - 3. nóvember
Salur
Eldborg
Skálmöld - Allt (Allar plöturnar, öll lögin)
Skálmöld spilar allar hljóðversplöturnar sínar 6 á þremur kvöldum í Eldborg í nóvember. Þannig verða öll kvöldin sett upp þannig að bandið spilar eina plötu fyrir hlé og aðra eftir hlé. Allra hörðustu aðdáendum gefst því tækifæri til þess að heyra hvert einasta lag sem sveitin hefur sett á breiðskífu við bestu mögulegu aðstæður. Kammerkórinn Hymnodia verður strákunum til halds og trausts en annars mun tónlistin njóta sín í upprunalegri útgáfu. Textum verður varpað upp á tjald og sitthvað fleira gert fyrir augu og eyru.
1. nóvember - Sorgir - Börn Loka
2. nóvember - Með vættum - Vögguvísur Yggdrasils
3. nóvember - Ýdalir - Baldur
Allir tónleikar hefjast kl. 20
Viðburðahaldari
Skálmöld
Miðaverð er sem hér segir:
A
13.990 kr.
B
11.990 kr.
C
9.490 kr.
D
6.990 kr.
X
15.990 kr.
Dagskrá
föstudagur 1. nóvember - 20:00
laugardagur 2. nóvember - 20:00
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.
Hápunktar í Hörpu