klassík, ókeypis viðburður, tónlist
Óperudagar: Jónas & Heine
Verð
0 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 3. nóvember - 13:00
Salur
Hörpuhorn
Kristín Einarsdóttir Mäntylä söngkona og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari flytja sönglög við ljóð Jónasar Hallgrímssonar og Heinrich Heine. Má þar m.a. heyra sönglög eftir Atla Heimi Sveinsson, Clöru Schumann, Felix Mendelssohn – Bartholdy og Franz Schubert. Þær bera saman Jónas og Heine, bæði sem einstaklinga og ljóðskáld, en þeir voru um margt líkir. Eins flytja þær nokkrar af þýðingum Jónasar á ljóðum Heine; t.d ljóðið “Neue Liebe” eftir Mendelssohn, sem Íslendingar þekkja sem „Álfareiðin“.
Þátttakendur
Kristín Einarsdóttir Mäntylä, söngkona
Eva Þyri Hilmarsdóttir, píanóleikari
Hægt er að kaupa dagpassa á alla viðburði í Hörpu, nánar hér
Viðburðahaldari
Óperudagar 2024
Miðaverð er sem hér segir:
Dagskrá
sunnudagur 3. nóvember - 13:00
Hápunktar í Hörpu