klassík, tónlist
Óperudagar: Vökudraumar
Verð
2.000 kr
Næsti viðburður
laugardagur 2. nóvember - 12:00
Salur
Norðurljós
Vökudraumar
Vera Hjördís Matsdóttir sópransöngkona og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari flytja Frauenliebe und -leben eftir Robert Schumann í sviðsetningu eftir Snæfríði Sól Gunnarsdóttur leikstjóra. Reynir Axelsson annast íslenskar þýðingar.
Ljóðaflokkurinn rekur tilfinningalega vegferð konu um þýðingarmikið tímabil í lífi hennar. Allt frá því hún ber ástmann sinn fyrst augum, trúlofast, giftist, kynnist móðurhlutverkinu og þangað til ástmaður hennar fellur frá, langt fyrir aldur fram. A´stri´ðufull ljóð Chamisso lifna við i´ to´nsmi´ðinni. Tónskáldinu hefur tekist vel til að para innihald ljóðanna við to´nlistina en undirliggjandi hljómar og rödd píanósins gefur alltaf sterklega til kynna tilfinningalífið sem bærist um.
Frauenliebe und -leben er einn af þekktustu ljóðaflokkum Schumann og er hann gjarnan fluttur víða um heim allan. Með því að sviðsetja verkið, stígum við einu skrefi nær áheyrendum og bjóðum þeim að upplifa verkið og allt það litróf tilfinninga sem í því býr, á áþreifanlegan hátt.
Þátttakendur
Vera Hjördís Matsdóttir, sópran
Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanóleikari
Snæfríður Sól Gunnarsdóttir, leikstjóri
Hægt er að kaupa dagpassa á alla viðburði Óperudaga í Hörpu 2. nóvember, nánar hér
Viðburðahaldari
Óperudagar 2024
Miðaverð er sem hér segir:
A
2.000 kr.
Dagskrá
Norðurljós
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót.
Hápunktar í Hörpu