börn og fjölskyldan, jól, ókeypis viðburður

Fjöl­skyldu­dag­skrá Hörpu: Jóla­stund

Verð

0 kr

Næsti viðburður

sunnudagur 8. desember - 11:00

Salur

Hörpuhorn

Harpa býður börnum og fjölskyldum upp á jólalega fjölskyldustund í Hörpuhorni sunnudaginn 8. desember. Söngur, dans, föndur og notalegheit.

Aðgangur er ókeypis og engin þörf á skráningu, opið meðan húsrúm leyfir.

Nánari upplýsingar og dagskrá verður birt síðar.

Aðgengi og aldur

Viðburðurinn krefst ekki ákveðinnar tungumálakunnáttu, hægt verður að spyrja spurninga á íslensku og ensku.

Viðburðurinn er ætlaður börnum á öllum aldri.

Viðburðurinn fer fram í Hörpuhorni á annarri hæð, með sléttu gólfi og góðu hjólastólaaðgengi.

Nánari upplýsingar um heimsóknir í Hörpu og aðgengismál má finna hér.

Við viljum upplýsa gesti um að ljósmyndari á vegum Hörpu gæti verið viðstaddur viðburðinn. Ef foreldrar eða forráðamenn vilja ekki að myndir af börnum þeirra birtist í umfjöllun um viðburðinn á miðlum Hörpu þá biðjum við ykkur vinsamlegast um að láta starfsfólk eða ljósmyndarann vita á staðnum eða í gegnum netfangið markadsdeild@harpa.is.


Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir:

Dagskrá

sunnudagur 8. desember - 11:00