jazz og blús, múlinn, tónlist
Karl Orgeltríó og Stefanía Svavars - James Bond og Bréfbátarnir - Múlinn jazzklúbbur
Verð
4.500 kr
Næsti viðburður
miðvikudagur 2. apríl - 20:00
Salur
Björtuloft
Múlinn jazzklúbbur
Flytjendur
Stefanía Svavarsdóttir, söngur
Karl
Olgeirsson, hammond orgel
Ásgeir Ásgeirsson, gítar
Ólafur Hólm, trommur
Um tónleikana
Loksins röðuðust stjörnurnar á himni þannig upp að leiðir Karls
Orgeltríós og Stefaníu Svavars sköruðust. Eitt kósí aprílkvöld á Múlanum mun
tríóið og Stefanía flytja vel valin lög úr lagabálki 007. View To A Kill er 40
ára í ár, Thunderbolt er 60 ára og Peter Sellers 100 ára, en hann lék Bond í
Casino Royale 1967. Myndin þótti ekki góð en tónlistin frábær og hver veit nema
The Look Of Love fái að hljóma. Og svo verða valinkunn lög úr sögu
Orgeltríósins flutt inn á milli.
Stefanía Svavars er löngu þjóðkunn og hefur sungið með helsta tónlistarfólki landsins frá því hún sigraði Samfés keppnina fyrir 17 árum. Karl Orgeltríó var stofnað af Óla Hóm, Ásgeiri Ásgeirs og Kalla Olgeirs til að spila jazz útí horni á ölknæpu á virkum dögum. Nú, tólf árum seinna hefur tríóið sent frá sér tvær breiðskífur, Happy Hour með Ragga Bjarna og Bréfbáta og unnið með fólki eins og Sölku Sól, Unu Stef, Siggu Beinteins, Siggu Eyrúnu, Röggu Gröndal, Rebekku Blöndal, RAKEL, Elín Hörpu, Sigga Guðmunds, Dísu Jakobs, Frikka Dór, Valdimar Guðmunds, Andreu Gylfa, Heiðu Ólafs og fleirum.
Viðburðahaldari
Múlinn Jazzklúbbur
Miðaverð er sem hér segir:
A
4.500 kr.
Dagskrá
Björtuloft
Björtuloft eru glæsileg og óvenjuleg umgjörð fyrir veislur, móttökur, einkasamkvæmi og fundi. Salurinn er á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni yfir borgina. Á neðri hæð er fastur bar og útgengi á svalir með útsýni yfir höfnina.
Hápunktar í Hörpu