börn og fjölskyldan, maxímús, ókeypis viðburður

Fjöl­skyldu­dag­skrá Hörpu: Sögu­stund með Maxímús og skóla­hljóm­veit Tónlist­ar­skóla Hafn­ar­fjarðar

Verð

0 kr

Næsti viðburður

sunnudagur 9. febrúar - 11:00

Salur

Norðurljós

Í sögustund með Maxa fáum við að fylgjast með tónlistarævintýrum hinnar ástsælu músar Maxímúsar Músíkúsar. Sögumaður les söguna Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina úr hinum vinsæla bókaflokki Hallfríðar Ólafsdóttur og Þórarins Más Baldurssonar við myndasýningu á tjaldi og lifandi tónlistarundirleik frá skólahljómsveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar undir stjórn Ármanns Helgasonar.

Sögustundin fer fram í Norðurljósum á annarri hæð og er um 40 mínútur að lengd. Svo er aldrei að vita nema Maxi sjálfur heilsi upp á gestina að sögustund lokinni!  

Aðgangur er ókeypis og opið meðan húsrúm leyfir.

Aðgengi og aldur  
Viðburðurinn fer fram á íslensku.  
Viðburðurinn hentar vel börnum frá þriggja ára aldri.
Viðburðurinn fer fram í Kaldalóni. Í salnum eru stæði fyrir hjólastóla á efsta bekk.  
Nánari upplýsingar um heimsóknir í Hörpu og aðgengismál má finna hér.

Við viljum upplýsa gesti um að ljósmyndari/upptökumaður á vegum Hörpu gæti verið viðstaddur viðburðinn. Ef foreldrar eða forráðamenn vilja ekki að myndir/myndbönd af börnum þeirra birtist í umfjöllun um viðburðinn á miðlum Hörpu þá biðjum við ykkur vinsamlegast um að láta starfsfólk eða ljósmyndarann vita á staðnum eða í gegnum netfangið markadsdeild@harpa.is.  

Næstu sögustundir með Maxímús  

8. mars 2025 - Maxímús Músíkús fer á fjöll
13. apríl 2025 - Maxímús Músíkús kætist í kór


Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir:

Dagskrá

sunnudagur 9. febrúar - 11:00

Norðurljós

Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót.