18th October 2024
Harpa leitar að mannauðs- og gæðastjóra
Ef þú hefur brennandi áhuga á að leiða mannauðs- og gæðaverkefnin í Hörpu - viljum við endilega heyra frá þér.
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús vill bjóða velkominn í hópinn nýjan liðsmann sem hefur ástríðu fyrir því að gera góðan vinnustað enn betri. Um er að ræða ábyrgðarfullt starf sem krefst jákvæðni, framsækinnar hugsunar, og leiðtogafærni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á þróun og framkvæmd mannauðsstefnu og gæðamála.
- Ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks.
- Efla og viðhalda góðum starfsanda.
- Umsjón með jafnlaunakerfi.
- Umsjón með ráðningum, starfsþróunar-, vinnuverndar- og fræðslumálum.
- Mótun ferla, innleiðing umbótaverkefna og árangursmælinga.
- Þekking á kjarasamningum (Rafís og VR) og samskipti við stéttarfélög og eftirlitsstofnanir.
- Önnur tengd verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- A.m.k. 3 - 5 ára reynsla af mannauðsmálum.
- Reynsla og þekking á verkefnastjórnun og ferlavinnu.
- Þekking og áhugi á gæðamálum og sjálfbærni.
- Áhugi og færni í að nýta tæknilausnir í starfi.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Metnaður til að ná árangri í starfi og góðir skipulagshæfileikar.
- Mikil færni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Hæfni og geta til að vinna undir álagi.
- Mjög gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð aldri, kyni eða uppruna.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsóknarfrestur er til og með 28. október nk. og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Fréttir
10th September 2024
Coocoo's Nest "brunch takeover" at Hnoss in Harpa
Lucas Keller from Coocoo's Nest and Leifur Kolbeinsson from La Primavera join forces at Hnoss!
9th September 2024
The Kalabanté Circus wowed the crowds in Harpa
West African dancing, singing, and jaw-dropping circus acts took centre stage this weekend when the Kalabanté Circus performed their show, Africa in Circus, twice in Eldborg.
9th September 2024
Road closures by Harpa today
Please note that the main entrance to Harpa's parking garage is closed today, but there are other ways to get there and those remain open.